Formúla 1

Schumacher stefnir á titil 2011

Schumacher áritar, en honum hefur ekki gengið vel á árinu til þessa og bíll hans ekki virkað sem skyldi.
Schumacher áritar, en honum hefur ekki gengið vel á árinu til þessa og bíll hans ekki virkað sem skyldi. Mynd: Getty Images
Michael Schumacher hjá Mercedes hefur gengist við því að eiga ekki möguleika á titilinum í ár, eftir brösótt gengi í mótum ársins. Besti árangur hans er fjórða sæti. Hann hefur sett stefnuna á 2011 hvað titil varðar. Lewis Hamilton er með 97 stig í stigamóti ökumanna, en Schumacher 34. Það eru mörg stig eftir í pottinnum, en Schumacher telur samt titilinn úr myndinni. "Ég hugsa ekki lengur um titilinn, það er óraunhæft miðað við stigin sem ég er með. Núna þarf ég að læra sem mest fyrir næsta ár og það verður mín hvatning", sagði Schumacher í dag í frétt á autosport.com. "Ég hef upplifað ýmsar aðstlæður á ferlinum og hef ekki áhyggjur og þetta letur mig ekki. Ég keyri af sama kappi og áður", sagði Schumacher, en Mercedes bíllinn hefur ekki reynst eins vel útfærður og bílar helstu keppinauta hans. Schumacher keppir á Silverstone um helgina. Sýnt er frá æfingum kl. 19.30 á föstudag á Stöð 2 Sport, frá æfingum á laugardag kl. 08.55 og tímatökunni kl. 11.45, en kappaksturinn er á sunnudag kl. 11.30 í opinni dagskrá eins og tímatakan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×