Keflavík og KR tryggðu sér sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. september 2010 16:56 Hildur Sigurðardóttir skoraði 30 stig fyrir KR-liðið í kvöld.
Það verða Íslandsmeistarar KR og Keflavík sem mætast í úrslitaleik Lengjubikars kvenna en undanúrslit keppninnar fóru fram í kvöld. Keflavík vann tíu stiga sigur á Hamar í Hveragerði á sama tíma og KR vann tveggja stiga sigur á bikarmeisturum Hauka í DHL-höllinni. Keflavík er þar með komið í úrslitaleik keppninnar í níunda sinn sem er met en KR-konur koma þar næstar eftir að hafa komist í úrslitaleik Fyrirtækjabikarsins í sjötta sinn í kvöld.KR-konur unnu 61-59 sigur á Haukum en voru nærri því búnar að missa niður örugga forustu á lokamínútum leiksins. KR náði að landa sigri og fær því tækifæri til að verja titilinn á sunnudaginn. KR-konur voru með örugga forustu fram eftir öllum leik á móti Haukum, 24-17 yfir eftir fyrsta leikhluta og með 12 stiga forskot í hálfleik, 42-30. Haukakonur voru þó ekki á því að gefast upp því þær skoruðu átta stig í röð í upphafi fjórða leikhluta og komu sér með því inn í leikinn. Lokamínúturnar voru síðan æsispennandi en Hildur Sigurðardóttir kórónaði stórleik sinn með því að tryggja KR sigur á vítalínunni. Hildur Sigurðardóttir var með 30 stig, 6 fráköst og 5 stoðsendingar hjá KR en Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir kom henni næst með 10 stig. Hjá Haukum var Alysha Harvin með 24 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar og Ragna Margrét Brynjarsdótir og Íris Sverrisdóttir skoruðu báðar 11 stig.Keflavíkurkonur unnu öruggan 75-65 sigur í Hveragerði þar sem þær tóku öll völd í fyrsta leikhluta og litu ekki til baka eftir það. Keflavík var 20-14 yfir eftir 1. leikhluta og var komið með 11 stiga forskot í hálfleik, 39-28. Jacquline Adamshick var mjög öflug hjá Keflavík með 22 stig, 19 fráköst og 5 stoðsendingar en Bryndís Guðmundsdóttir bætti við 20 stigum og 12 fráköstum og Birna Valgarðsdóttir var með 10 stig. Jaleesa Butler skoraði 21 stig og tók 13 fráköst fyrir Hamar, Slavica Dimovska var með 17sstig og Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 13 stig.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Leið Íslands á HM skýrist og leikur í Osló hjálpaði Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Fleiri fréttir Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Sjá meira