Handbolti

Lino Cervar horfði á Framstelpurnar vinna Metalurg í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lino Cervar stillir sér upp með Framstelpunni Steinunni Björnsdóttur.
Lino Cervar stillir sér upp með Framstelpunni Steinunni Björnsdóttur. Mynd/Fram

Lino Cervar, landsliðsþjálfari karlaliðs Króatíu, var á meðal áhorfenda þegar Framkonur unnu 29-26 sigur á Metalurg í gær í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Áskorendakeppni Evrópu. Báðir leikir liðanna fara fram í Skopje í Makedóníu.

Framliðið spilar seinni leikinn í dag og hefst hann klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Sá leikur telst vera heimaleikur króatíska liðsins en Framliðið hefur þriggja marka forskot upp á að hlaupa og á því mjög góða möguleika á að komast í undanúrslit keppninnar.

Það er hægt að fylgjast með gangi mála í leiknum á heimasíðu Fram sem og á fésbóksíðu stelpnanna þar sem má finna þessi mynd af Lino Cervar og Framstelpunni Steinunni Björnsdóttur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×