Handbolti

Kjelling verður með Norðmönnum á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristian Kjelling.
Kristian Kjelling.

Það er nú ljóst að norska stórskyttan Kristian Kjelling verður með landsliðinu á HM og mun því meðal annars mæta Íslandi en liðin eru saman í riðli.

Kjelling er meiddur og þurfti að gera upp við sig hvort hann myndi leika þjáður eða fara strax í aðgerð og þar með missa af HM.

Hann hefur ákveðið að bíta á jaxlinn og spila áfram. Hann mun síðan leggjast undir hnífinn eftir HM og taka sér smá tíma í hvíld.

Kjelling leikur með Ingimundi Ingimundarsyni hjá danska liðinu AaB.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×