Körfubolti

Arnþór: Áttum að klára leikinn

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar
Strákarnir hans Bárðar töpuðu loks í kvöld.
Strákarnir hans Bárðar töpuðu loks í kvöld.

„Við héldum einbeitingunni í dag ekki nema í þrjátíu og átta mínútur og það dugði ekki í dag. En við erum búnir að vera spila vel upp á síðkastið og það er jákvætt," sagði Arnþór Freyr Guðmundsson, leikmaður Fjölnis, eftir sárt tap á móti KR í kvöld.

„Við erum búnir að vera stríða liðunum í efri hlutanum upp á síðkastið og það hefur bara gengið vel. En í kvöld varð einbeitingarskortur okkur að falli, sérstaklega sóknarlega," sagði Arnþór Freyr.

Fjölnis-liðið spilaði vel í kvöld og voru líklegir til að fara með sigur af hólmi allt þar til að tvær mínútur voru eftir.

„Við vorum fjórum stigum yfir þegar að tvær mínútur voru eftir og við áttum bara að klára þetta," sagði Arnþór svekkur í leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×