Handbolti

Arnór með níu mörk í sigri AG - Füchse tapaði stigi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór í leik með AG Kaupmannahöfn.
Arnór í leik með AG Kaupmannahöfn. Mynd/AG
Arnór Atlason fór á kostum þegar að AG Kaupmannahöfn vann sigur á Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta, 38-32.

Snorri Steinn Guðjónsson leikur einnig með liðinu sem er enn taplaust í deildinni með 41 stig af 42 mögulegum.

Þá tapaði Füchse Berlin óvænt stigi í þýsku úrvalsdeildinni í dag er liðið gerði jafntefli við Melsungen á útivelli, 22-22.

Alexander Petersson skoraði fimm mörk fyrir Berlin sem er í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig. Melsungen er í þrettánda sæti með þrettán stig. Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×