Handbolti

Goluza hættir sem félagsþjálfari

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Goluza heldur áfram með króatíska liðið. AFP.
Goluza heldur áfram með króatíska liðið. AFP.
Það er ekki auðvelt að stýra landsliði í handbolta og félagsliði á sama tíma. Það hefur Slavko Goluza, landsliðsþjálfari Króatíu, fengið að reyna.

Hvorki hefur gengið né rekið hjá félagsliði hans, Sisak, síðan hann kom heim frá HM í Svíþjóð. Liðið er búið að tapa fjórum leikjum í röð og hann er því hættur.

"Þessa taphrinu má að mörgu leyti skrifa á fjarveru mína frá liðinu enda var ég frá í sex vikur. Þess vegna er mér ekki stætt af öðru en að hætta með liðið," sagði Goluza.

Hann er því farinn að undirbúa sitt lið að fullu fyrir leik gegn Spánverjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×