Arsenal að "stela" öðrum Fabregas frá Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. febrúar 2011 23:45 Cesc Fabregas með nokkrum leikmönnum Barcelona. Mynd/Nordic Photos/Getty
Spænskir fjölmiðlar halda því fram að Arsenal sé á leiðinni að fá til sín efnilegan miðjumann frá Barcelona og segja þetta minna mikið á það þegar Arsenal-menn nældu í Cesc Fabregas á sínum tíma. Joan Toral er sextán ára miðjumaður sem hefur verið í unglingaliði Barcelona í mörg ár en hann vill nú fara frá spænsku meisturunum. Joan Miguel Toral Harper á enska móður en hann hefur verið í unglingaliðum Barcelona frá því áður en hann komst á táningsaldurinn. Fabregas var einu ári yngri en hann þegar hann fór til Arsenal á sínum tíma. Sandro Rosell, forseti Barcelona, er ekki alltof ánægður með þessar fréttir en það er ekki eins og Barcelona-menn viti ekki neitt um málið því umboðsmaður stráksins er Pere Guardiola, bróðir þjálfarans Pep Guardiola. Chelsea, Manchester City og Liverpool hafa öll spurst fyrir um leikmanninn sem sér ekki mikla möguleika á því að komast að hjá hinu geysisterka liði Barcelona og vill því komast annað. Fabregas blómstraði undir stjórn Wenger og því ætti margt að mæla með því að Toral fari til Arsenal. Ákveði leikmaðurinn að hætta hjá Barcelona og semja við annað félag þá á Barcelona bara rétt á lágmarksbótum sem eru um 300 þúsund evrur en það þykir ekki mikið í fótboltaheiminum í dag.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool Fótbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti John Barnes greindist með krabbamein Fótbolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Fótbolti Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Fótbolti Tileinkaði Úkraínu sigurinn Sport Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Fleiri fréttir Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjá meira