Handbolti

Einar Örn: Heppnin loks með okkur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Einar Örn Jónsson, leikmaður Hauka.
Einar Örn Jónsson, leikmaður Hauka. Mynd/Stefán
„Þetta var virkilega stór sigur fyrir okkur. Við erum líka mjög ánægðir með að önnur úrslit duttu fyrir okkur þannig að við erum mjög ánægðir með kvöldið," sagði Einar Örn Jónsson, leikmaður Hauka eftir 29-28 sigur á HK á Ásvöllum í kvöld.

„Við höluðum þessu inn á lokasprettinum þrátt fyrir að hafa verið betri aðilinn stærstan hluta leiksins, svo missum við aðeins einbeitingu á kafla og hleyptum þeim aftur inn í leikinn. Þá hefði þetta endað hvoru megin en við vorum heppnari á endasprettinum," sagði Einar.

„Heppnin var með okkur í þessum leik, við fengum gott mark frá Tjörva á síðustu sekúndunum og Birkir varði vel í lokinþ Heppnin hefur ekki verið með okkur í vetur í tæpum leikjum en kannski er hún að koma núna," sagði Einar.

„Við stefnum á úrslitakeppnina og núna lítum við á bæði þriðja og fjórða sætið sem bæði gefa sæti í úrslitakeppninni. Við stefnum auðvitað á annað sætið og heimaleikjarétt en núna er einn leikur í einu og við sjáum hvert það leiðir okkur," sagði Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×