Sigurganga Njarðvíkurkvenna heldur áfram - slógu út Hauka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2011 20:46 Shayla Fields fór á kostum í einvíginu á móti Haukum. Mynd/Anton
Njarðvík tryggði sér sæti í undanúrslitum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta eftir 28 stiga sigur á Haukum, 83-55, í kvöld í öðrum leik liðanna í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Njarðvík vann einvígið 2-0 og er í undanúrslitum í fyrsta sinn síðan 2003. Njarðvík mætir deildarmeisturum Hamars í undanúrslitunum. Shayla Fields var stigahæst með 24 stig hjá Njarðvík, Julia Demirer skoraði 16 stig, Ólöf Helga Pálsdóttir var með 10 stig og Dita Liepkalne var með 8 stig og 14 fráköst. Hjá Haukum var Ragna Margrét Brynjarsdóttir atkvæðamest með 11 stig en það munaði miklu um það að bandaríski leikmaðurinn Kathleen Snodgrass skoraði aðeins 6 stig. Njarðvík var 17-13 yfir eftir fyrsta leikhluta en stakk af í öðrum leikhlutanum sem liðið vann 18-6 og var því með sextán stiga forskot í hálfleik, 35-19. Sigur Njarðvíkur var síðan aldrei í hættu í seinni hálfleiknum. Njarðvíkurliðið hefur unnið átta síðustu leiki sína en fyrir aðeins sjö vikum var liðið í fallbaráttu eftir níu töp í röð. Tilkoma þriðja erlenda leiksmannsins breytti hinsvegar öllu og liðið hefur nú ekki tapað leik á Íslandsmótinu síðan 24. janúar. Njarðvík-Haukar 83-55 (17-13, 18-6, 25-17, 23-19)Njarðvík: Shayla Fields 24/7 fráköst, Julia Demirer 16/8 fráköst, Ólöf Helga Pálsdóttir 10/4 fráköst/5 stoðsendingar, Eyrún Líf Sigurðardóttir 9, Dita Liepkalne 8/15 fráköst, Ína María Einarsdóttir 7, Anna María Ævarsdóttir 4, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4, Árnína Lena Rúnarsdóttir 1.Haukar: Ragna Margrét Brynjarsdóttir 11/8 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/4 fráköst, Margrét Rósa Hálfdánardótir 9/4 fráköst, Kathleen Patricia Snodgrass 6/5 fráköst, María Lind Sigurðardóttir 5, Ína Salóme Sturludóttir 5, Íris Sverrisdóttir 4/5 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 3, Helga Jónasdóttir 2/7 fráköst, Guðrún Ósk Ámundardóttir 1.Njarðvík vann einvígið 2-0 og mætir Hamar í undanúrslitunum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira