Handbolti

Kristinn: Vorum bara klaufar í lokin

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég er bara svekktur því við ætluðum okkar að vinna þennan leik,“ sagði Kristinn Guðmundsson, annar þjálfari HK, eftir ósigurinn í kvöld.

 

„Við náðum að vinna okkur vel inn í leikinn og komum virkilega sterkir til baka en það dugði ekki til. Markmiðið með þessum leik var að setja upp ákveðna leikfræði fyrir úrslitakeppnina. Ef við ætlum okkur að vera þar af einhverju viti þá þurfum við að sýna stöðuleika í okkar leik".

 

„Ég er mjög ánægður hvernig liðið kom inn í leikinn í síðari hálfleik og strákarnir sýndu flottan karakter. Við vorum samt algjörir klaufar að klára ekki leikinn og getum bara kennt okkur sjálfum um það. Þetta þýðir bara að við verðum að fara norður og berjast við Akureyringana og það verður krefjandi verkefni,“ sagði Kristinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×