Handbolti

Rut fékk silfur í EHF-bikarkeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Rut skoraði þrjú fyrir Team Tvis í dag.
Rut skoraði þrjú fyrir Team Tvis í dag. Mynd/Ole Nielsen
Landsliðskonan Rut Jónsdóttir og félagar í danska liðinu Team Tvis Holstebro máttu sætta sig við silfur í EHF-bikarkeppni kvenna.

Team Tvis vann í dag tveggja marka sigur á öðru dönsku liði, Midtjylland, í síðari úrslitaleik liðanna en það dugði ekki til. Midtjylland vann fyrri leikinn, 28-21, og þar með 52-47 samanlagt.

Lokatölurnar í dag voru 26-24, Team Tvis í vil, en Rut skoraði þrjú mörk í leiknum. Hún skoraði eitt mark í fyrri leiknum fyrir viku síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×