Þrjú íslensk mörk í Íslendingaslag í Svíþjóð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. maí 2011 16:46 Mynd/Daníel
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði bæði mörk Norrköping sem gerði 2-2 jafntefli við IFK Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Ragnar Sigurðsson skoraði jöfnunarmark Gautaborgar í leiknum. Gunnar Heiðar skoraði fyrsta markið strax á fyrstu mínútu en Gautaborg jafnaði á fjórtándu mínútu. Gunnar Heiðar skoraði svo aftur á 20. mínútu en Ragnar jafnaði með marki skömmu fyrir leikhlé. Ekkert var skorað í síðari hálfleik og jafntefli því niðurstaðan. Gunnar Heiðar lék allan leikinn fyrir Norrköping en þeir Ragnar, Hjörtur Logi Valgarðsson og Theodór Elmar Bjarnason léku allan leikinn fyrir Gautaborg. Hjálmar Jónsson var á meðal varamanna og kom ekki við sögu. GAIS vann 1-0 sigur á Syrianska en Hallgrímur Jónasson sat á bekknum hjá GAIS að þessu sinni og spilaði ekki. Eyjólfur Héðinsson spilaði allan leikinn er lið hans, SönderjyskE, vann 1-0 sigur á Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni. Ólafur Ingi Skúlason var hins vegar ekki í hópnum í dag en markvörðurinn Arnar Darri Pétursson var á bekknum. Arnór Smárason lék fyrstu 74 mínúturnar er Esbjerg gerði markalaust jafntefli við Álaborg ´a heimavelli. Esbjerg er í slæmum málum í deildinni en liðið er í tólfta og neðsta sæti deildarinnar með 29 stig þegar þrjár umferðir eftir. Það lítur út fyrir æsispennandi fallslag á lokasprettinum þar sem aðeins þrjú stig skilja að liðin í sjötta og ellefta sæti deildarinnar. SönderjyskE er í þeim pakka - með 33 stig í níunda sæti. Íslendingar voru í eldlínunni í norsku B-deildinni í dag. Asker vann 1-0 sigur á Hönefoss á útivelli en Kristján Örn Sigurðsson er leikmaður síðarnefnda liðsins. Atli Heimisson var í byrjunarliði Asker en var skipt af velli á 57. mínútu.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Sjá meira