Handbolti

Ágúst: Eigum raunhæfa möguleika á HM-sæti

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska landsliðsins.
Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari íslenska landsliðsins. Mynd/Valli
Ágúst Þór Jóhannsson tók nýverið við þjálfun kvennalandsliðsins í handbolta ásamt Einari Jónssyni. Þeir fá nú það verkefni að koma Íslandi á næsta stórmót sem er HM í Brasilíu.

Ísland keppti á sínu fyrsta stórmóti þegar liðið komst á EM í Danmörku á síðasta ári. Nú bíða leikir gegn Úkraínu þar sem í húfi er farseðill á HM sem fer fram í Brasilíu í desember næstkomandi.

Ágúst starfar einnig sem þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Levanger auk þess sem hann starfaði áður sem þjálfari nokkurra íslenskra félagsliða sem og yngri landsliða Íslands.

„Það hefur svo sem ekki margt komið mér á óvart fyrstu vikurnar í þessu starfi," sagði Ágúst í samtali við Vísi. „Helst er að umgjörðin í kringum liðið er betri en ég átti von á og er það auðvitað af hinu góða. Það er greinilegt að þessi mál hafa þróast til betri vegar hjá handknattleikssambandinu síðustu árin. Það er til fyrirmyndar."

„Það er því gott að starfa með þessum hópi leikmanna auk þess sem að það er gott fólk að vinna í kringum liðið."

Ísland mætir sterku liði Svíþjóðar í Vodafone-höllinni bæði í dag og annað kvöld en leikirnir eiga að undirbúa stelpurnar fyrir átökin gegn Úkraínu.

„Leikmenn öðluðust dýrmæta reynslu á síðasta EM og liðið er á mjög góðum aldri. Þó svo að úrslit leikjanna á EM hafi ekkert verið frábær fékk liðið ákveðna eldskírn og frammistaða þess að mörgu leyti góð."

„Nú er stefnan sett á HM og ljóst að það verður erfitt verkefni að mæta Úkraínu. En við eigum raunhæfan möguleika á að komast áfram og munum leggja allt okkar til að láta þann draum rætast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×