Handbolti

Björgvin Páll einum sigri frá því svissneska meistaratitlinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Björgvin Páll Gústavsson.
Björgvin Páll Gústavsson. Mynd/DIENER
Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik í kvöld þegar Kadetten vann 26-23 sigur á Pfadi Winterthur í öðrum úrslitaleik liðanna um svissneska meistaratitilinn. Kadetten er því komið í 2-0 í úrslitaeinvíginu og vantar aðeins einn sigur til viðbótar til að verða svissneskur meistari annað árið í röð.

Björgvin Páll fór mikinn í markinu og varði meðal annars þrjú víti frá leikmönnum Pfadi Winterthur í leiknum. Leikurinn í kvöld fór fram á heimavelli Winterthur en Kadetten vann 29-25 sigur í fyrsta leik liðanna.

Björgvin Páll og félagar eiga möguleika á því að verða tvöfaldir meistarar því þeir unnu bikarinn fyrr á þessu tímabili. Þetta er síðasta tímabil Björgvin með Kadetten Schaffhausen en hann hefur samið við þýska félagið SC Magdeburg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×