Íslensk hönnun á pokum til styrktar UN Women 4. ágúst 2011 13:27 Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína
Hönnunarteymið Marandros; Katla Rós Völudóttir og Ragnar Már Nikulásson ásamt fatahönnuðinum Unu Hlín Kristjánsdóttur sem hannar undir merkinu Royal Extreme hönnuðu poka til styrktar UN Women á Íslandi. Pokarnir eru þegar komnir í sölu. Það er hlutverk UN Women á Íslandi að vekja landsmenn til umhugsunar um stöðu kvenna í fátækustu ríkjum heims og pokarnir eru ein leið til að ná til fólks. Það er ósk listamannanna að með hverjum poka sem selst aukist meðvitund landsmanna um samtökin og stöðu kvenna í þróunarlöndum og á stríðshrjáðum svæðum, en allur ágóði af pokunum rennur beint til UN Women. Una hefur vakið mikla athygli frá því að hún frumsýndi fyrstu línu sína á RFF fyrir tveimur árum og Katla Rós og Ragnar voru meðal annars tilnefnd til forsetaverðlauna nýsköpunarsjóðs á dögunum. Í tilkynningu frá UN Women segir að pokarnir séu sumarlegir og henta bæði konum og körlum. Það er ósk UN Women á Íslandi að gefa efnilegum íslenskum listamönnum tækifæri árlega til að hanna nýja poka og koma þannig list sinni á framfæri. Allur ágóði af pokunum rennur óskiptur til UN Women á Íslandi. Listamennirnir gáfu alla vinnu sína og hvetur landsnefndin alla til þess að leggja málefninu lið og kaupa sér poka. Pokarnir fást í Aurum, GK , Kiosk, Mýrinni, Kisunni og Minju. Einnig er hægt að fjárfesta í eintaki á skrifstofu UN Women á Laugavegi 42
RFF Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Fleiri fréttir Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Sjá meira