Di Natale um Arsenal-leikinn: Stærsti leikurinn í sögu Udinese Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2011 13:30 Antonio Di Natale fagnar hér með börnum sínum þegar Udinese komst í Meistaradeildina í vor. Mynd/Nordic Photos/Getty
Antonio Di Natale, fyrirliði ítalska liðsins Udinese, segir að leikur liðsins á móti Arsenal í forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld sé sá mikilvægasti og stærsti í sögu félagsins. „Það er mín skoðun að það hafi ekki farið fram stærri leikur í sögu Udinese. Sá leikur sem kemst næst því er leikurinn á móti Ajax árið 1997 en hann var bara í UEFA-keppninni. Þetta er leikur í Meistaradeildinni," sagði Antonio Di Natale sem hefur spilað með Udinese frá árinu 2004. Antonio Di Natale er 33 ára framherji sem á að baki 36 landsleiki fyrir Ítala og hefur verið markakóngur ítölsku deildarinnar undanfarin tvö ár. Hann hefur hreinlega farið á kostum með liðinu undanfarin tvö ár, skoraði 28 mörk í 36 leikjum á síðustu leiktíð og 29 mörk í 35 leikjum tímabilið á undan. Arsenal og Udinese mætast á Emirates-vellinum klukkan 18.45 í kvöld og er leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport. Seinni leikurinn fer síðan fram á Ítalíu í næstu viku. Það lið sem hefur betur í þessum tveimur leikjum kemst í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en tapliðið fer í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.
Ítalski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Rúnar Páll kynnti teymið sitt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Sjá meira