Handbolti

Sigrar hjá Fram og Stjörnunni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram.
Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram.
Stjarnan og Fram eru enn með fullt hús stiga í Reykjavíkurmóti kvenna í handbolta en tveir leikir fóru fram í kvöld.

Stjarnan vann stórsigur á Aftureldingu, 45-15, eftir að hafa verið með fjórtán marka forystu í hálfleik. Hildur Harðardóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna og Sólveig Lára Kjærnested sjö.

Þá vann Fram sigur á Fylki, 33-22, eftir að hafa leitt með tíu marka mun í hálfleik. Stella Sigurðardóttir skoraði átta mörk fyrir Fram en Sunna Jónsdóttir, sem kom frá Fylki í Fram í sumar, skoraði tvö mörk.

Hjá Fylki var Sunna María Einarsdóttir markahæst með sjö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×