Handbolti

Snorri með stórleik - fyrsti leikur Arnórs

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnór og Snorri fagna á Parken á síðustu leiktíð.
Arnór og Snorri fagna á Parken á síðustu leiktíð.
Snorri Steinn Guðjónsson fór hamförum í liði AGK í dag er það vann Skjern, 28-20, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik. Snorri skoraði sjö mörk og var valinn maður leiksins.

Guðjón Valur Sigurðsson var einnig sprækur og skoraði sex mörk. Arnór Atlason lék með AGK en þetta var hans fyrsti leikur fyrir liðið eftir langvinn meiðsli.

Ólafur Stefánsson var aftur á móti fjarri góðu gamni í liði AGK vegna meiðsla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×