Handbolti

Íslendingarnir hjá AKG afgreiddu Viborg

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Snorri Steinn hefur farið mikinn í upphafi leiktíðar.
Snorri Steinn hefur farið mikinn í upphafi leiktíðar.
Íslendingaliðið AG Köbenhavn vann öruggan sigur, 36-25, á Viborg í kvöld. AGK kláraði leikinn í fyrri hálfleik en eftir hann var staðan 18-7 AGK í vil.

Guðjón Valur Sigurðsson fór sem fyrr mikinn í liði AGK og var markahæstur með sjö mörk.

Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason komu þar á eftir með fimm mörk.

AGK er í efsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×