Handbolti

Úrslit kvöldsins í N1-deild karla - FH, Valur og HK unnu

Mynd/Valli
Þrír leikir fóru fram í N1-deild karla í kvöld. FH vann góðan sigur á Akureyri en Valur og HK unnu þar að auki nokkuð þægilega sigra á nýliðum deildarinnar.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér fyrir neðan. Umfjöllun um leikina þrjá og viðtöl eru svo væntanleg á Vísi síðar í kvöld.

Leikir kvöldsins:

Akureyri - FH 20-24 (12-11)

HK - Grótta 25-22 (11-9)

Valur - Afturelding 25-20 (11-12)

Bein textalýsing:

Leik lokið: Valur - Afturelding 25-20

Öruggur sigur Vals á nýliðum Aftureldingar.

Leik lokið: HK-Grótta 25-22

Frekar öruggur sigur HK í lítt skemmtilegum handboltaleik.

59. mín Valur - Afturelding 24-19

Þessi leikur er búinn og leikmenn Aftureldingar vita af því.

55. mín Valur - Afturelding 23-17

Valsmenn eru að klára þennan leik með hröðum sóknum og fínni vörn.

56. mín: HK-Grótta 24-19

HK er að klára þennan leik.

51. mín Valur - Afturelding 21-17

Sverrir Hermannsson, leikmaður UMFA, hefur átt heldur erfiðan dag en hann hefur aðeins skorað eitt mark úr tíu skotum. Hlynur Mothens er með hann í vasanum.

51. mín: HK-Grótta 22-18

Grótta reynir að sprikla á lokamínútunum. Er það nóg?

44. mín Valur - Afturelding 19-16

Valsmenn komnir með þriggja marka forystu sem er sú mesta í leiknum.

45. mín: HK-Grótta 20-15

HK er smám saman að taka þennan leik í sínar hendur. Fjarar undan leik Gróttumanna. Samt enn tími til að rífa sig upp aftur.

41. mín Valur - Afturelding 17-15

Hlynur Morthens er að reynast gestunum virkilega erfiður en hann hefur tekið 14 skot.

Leik lokið: Akureyri - FH 20-24

Eftir fyrstu 10 mínúturnar tók FH öll völd á vellinum. Það var einfaldlega betra. Það spilaði fína sókn og vörnin ágæt fyrir framan Daníel.



38. mín: HK-Grótta 16-13

HK að byrja síðari hálfleikinn betur. Markverðirnir ekki eins sprækir og í fyrri hálfleik.

33. mín Valur - Afturelding 14-12

Valsmenn skora þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiksins og eru komnir yfir.

53. mín: Akureyri - FH 17-21

Daníel að verja frábærlega og FH að bæta við. Stefnir allt í sigur FH.

31. mín: Valur - Afturelding 11-12


Síðari hálfleikur er hafinn.

31. mín: HK-Grótta 11-9

Síðari hálfleikur er hafinn. Grótta sækir að minni klukkunni.

46. mín: Akureyri - FH 15-19

FH búið að spila frábærlega, sérstaklega Daníel. Sveinbjörn farinn úr marki Akureyrar.

Hálfleikur: Valur - Afturelding 11-12

Afturelding hefur haft ákveðið frumkvæði í fyrri hálfleiknum og hafa eins marks forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks

Hálfleikur: HK-Grótta 11-9

Ólseigir Gróttumenn enn inn í leiknum. Það geta þeir að mestu þakkað markverði sínum Lárusi Ólafssyni sem hefur farið hamförum og varið 14 skot. HK-ingar sjálfum sér verstir. Markvörður þeirra, Arnór Freyr Stefánsson, einnig varið vel eða 11 skot.

43. mín: Akureyri - FH: 15-17

FH kemst tveimur mörkum yfir. Hörður Fannar meiddist illa og Guðlaugur, Öxlin, spilar nú í sókn Akureyrar.

26. mín: Valur - Afturelding 9-10

Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, tekur leikhlé en honum líkar ekki vel við spilamennsku sinna manna.

25. mín: HK-Grótta 10-8

Gróttumenn tóku upp á því að láta reka sig af velli í gríð og erg. Stundum fyrir heimskupör. Fáliðaðir Seltirningar stóðust álagið ágætlega.

39. mín: Akureyri - FH 14-15

Heimamenn eru mjög ósáttir með annan dómara leiksins, Arnar Sigurjónsson, sem á greinilega enn margt eftir ólært. Anton Gylfi Pálsson er hinsvegar með allt á hreinu, en allt kemur fyrir ekki. FH enn með yfirhöndina.

23. mín Valur - Afturelding 7-8

Fínn kafli hjá gestunum en Hilmar Stefánsson er að leika virkilega vel fyrir Aftureldingu.

20.mín Valur - Afturelding 6-6

Liðin eru bæði að gera mikið af mistökum en það hefur einkennt þennan fyrri hálfleik.

19. mín: HK-Grótta 7-6

Gróttumenn hafa heldur betur girt sig í brók. Hafa lokað vörninni og skotin farin að rata á markið. Sóknarleikur HK hefur með það sama dottið í ruglið og Erlingur tekur leikhlé.

34. mín: Akureyri - FH 13-14

FH byrjar á því að komast yfir. Akureyri misst boltann þrisvar klaufalega.

16. mín: Valur - Afturelding 5-5

Hlynur Morthens hefur varið sex skot en leikmenn Aftureldingar eru að skjóta virkilega illa á markmanninn.

31. mín: Akureyri - FH 12-11

Síðari hálfleikur er hafinn.

13. mín: Valur - Afturelding 5-4

Valsmenn allir að koma til og sóknarleikur þeirra gengur mikið mun betur.

14. mín: HK-Grótta 7-4

Grótta aðeins að finna taktinn og Lárus Ólafsson að verja frábærlega. Kominn með 8 varin skot. Bjarki Már Elísson skoraði fyndnasta mark ársins áðan. Stal boltanum og skaut í tómt markið þar sem Lárus markvörður var á spjalli á bekknum. Skot Bjarka fór í gólfíð og slána. Hann tók frákastið og skoraði. Hressandi.

9. mín: Valur - Afturelding 1-3

Valsmenn hafa ekki skorað í átta mínútur

9. mín: HK-Grótta 5-1

Guðfinni þjálfara Gróttu nóg boðið og tekur leikhlé. Sóknarleikur Gróttu í molum í upphafi. Guðfinnur bendir einum leikmanna sinna á að hann sé skytta en ekki hornamaður. Nauðsynlegt að hafa þetta á hreinu.

Hálfleikur: Akureyri - FH 12-11

FH gerði vel í að jafna leikinn eftir að hafa lent 5-0 undir. Spennandi seinni hálfleikur framundan.

6. mín: HK-Grótta 4-1


Atli Ævar Ingólfsson, línumaður HK, að fara mikinn og skora þrjú mörk. Markverðir liðanna báðir varið vel í upphafi.

6. mín: Valur - Afturelding 1-2

Gestirnir skora tvö mörk í röð.

4. mín: Valur - Afturelding 1-0

Hæg byrjun á leiknum og aðeins eitt mark komið.

3. mín: HK - Grótta 2-1

HK byrjar leikinn betur.

19.30 HK - Grótta

Leikurinn er hafinn.

19.30 Valur - Afturelding

Leikurinn er hafinn og Sigufús Sigurðsson hefur leikinn í miðri vörn Vals.



25. mín: Akureyri - FH 10-9


Jafnræði með liðunum, Örn Ingi að koma sterkur inn hjá FH.



20. mín: Akureyri - FH 8-6


Loksins skoraði Andri Berg, en Baldvin hefur skorað fimm mörk fyrir FH. Daníel er byrjaður að verja í FH-markinu.



19.24 Valur - Afturelding

Valsarinn Sigfús Sigurðsson hitaði upp eins og enginn væri morgundagurinn og virkar nokkuð léttur á sér. Liðin eru farinn inn til búningsherbergja þar sem lokaræða þjálfaranna fer líklega fram.

Valur gerði jafntefli við Gróttu í fyrstu umferðinni sem kom nokkuð á óvart en Afturelding tapaði þá fyrir Akureyri með ellefu marka mun.



17. mín: Akureyri - FH 6-4


Akureyri skoraði loks eftir 8 mínútur án þess að skora. Sveinbjörn var að verja sitt annað víti í dag.



13. mín: Akureyri - FH 5-3


FH hefur skorað þrjú mörk í röð.



19.12 HK - Grótta

Það er rólegt í Digranesi þegar 20 mínútur eru í leik. Grótta kom gríðarlega á óvart í fyrstu umferð er liðið náði jafntefli gegn Val en einhverjir spáðu því að Grótta myndi ekki fá stig í vetur. HK, sem spáð var þriðja sæti, tapaði á heimavelli gegn Haukum og þarf á sigri að halda í kvöld.

Vallarþulur gerir sitt besta til þess að ná þeim tíu sem mættir eru í hús í gang. Föstudagsslagarinn Kickstart My Heart með Mötley Crue á blastinu. Vel gert



9. mín: Akureyri - FH 5-1


Baldvin skorar loksins fyrir FH sem er nú einum fleiri. Sókn liðsins er léleg.

7 mín: Akureyri - FH 5-0

Sveinbjörn í gríðarlegum ham, Hörður Fannar kominn með tvö í röð.

5. mín: Akureyri - FH 3-0

Guðmundur Hólmar skorar tvö mörk og Sveinbjörn kominn með þrjú skot varin.

2. mín: Akureyri - FH 1-0

Geir Guðmundsson stimplar sig inn eftir að Sveinbjörn varði vel áðan. FH fékk 2 mínútna brottvísun í fyrstu sókn.

19.00: Akureyri - FH

Leikurinn er hafinn fyrir norðan.

18.45 Akureyri - FH:

Heimir Örn Árnason hitar upp með liði Akureyrar. Hann verður frá í nokkrar vikur og mun því gera eins og Geir Guðmundsson gerði í fyrra þegar hann var meiddur, taka þátt í öllu nema leiknum sjálfum.

31. mín: HK-Grótta 11-9

Síðari hálfleikur er hafinn. Grótta sækir að minni klukkunni



Fleiri fréttir

Sjá meira


×