Handbolti

Rut gæti misst af HM

Rut Jónsdóttir.
Rut Jónsdóttir.
Landsliðskonan Rut Jónsdóttir gæti misst af HM í Brasilíu í desember en hún slasaðist illa á hné í leik gegn FIF.

Rut, sem leikur með Team Tvis Holstebro, gæti hafa slitið krossband og ef það er raunin þá er ekki nokkur leið að hún verði með á HM.

Það kemur væntanlega í ljós fljótlega hversu lengi hún verður frá. Ef hún missir af HM er það mikið áfall fyrir landsliðið okkar þar sem Rut er í lykilhlutverki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×