Handbolti

Guðjón Valur með sex og Arnór maður leiksins

Eiríkur Stefán ÁSgeirsson skrifar
Guðjón Valur í leiknum í kvöld.
Guðjón Valur í leiknum í kvöld. Mynd/Heimasíða AG
Arnór Atlason var valinn maður leiksins á heimasíðu AG Kaupmannahafnar eftir sigur liðsins á Skanderborg, 28-20, í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

AG er enn með fullt hús stiga í Danmörku eftir sex leiki en sjötta umferðin hófst í kvöld. Sigur AG var öruggur en staðan í hálfleik var 16-11, heimamönnum í vil.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir AG í kvöld og Arnór Atlason fimm. Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt en Ólafur Stefánsson er enn frá vegna meiðsla.

Svíinn Nicklas Ekberg var markahæsti leikmaður AG í kvöld með átta mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×