Handbolti

Íslensku stelpurnar töpuðu með fjórum gegn Póllandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Stella var valinn besti leikmaður íslenska liðsins af mótshöldurum.
Stella var valinn besti leikmaður íslenska liðsins af mótshöldurum. Mynd / Vilhelm
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði með fjórum mörkum gegn Pólverjum á æfingamóti í Póllandi í kvöld. Lokatölurnar urðu 26-22 heimakonum í vil sem voru vel studdar af 1.500 áhorfendum. Þetta kemur fram á mbl.is í kvöld.

Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Stella Sigurðardóttir voru markahæstar í íslenska liðinu með fjögur mörk. Guðný Jenný Ásmundsdóttir varði 16 skot í íslenska markinu.

Íslenska liðið beið lægri hlut gegn Hollendingum í fyrsta leik sínum á mótinu í gær 23-29. Liðið mætir Tékkum í lokaleik sínum í riðlinum í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×