Sjálfsmark Haraldar banabiti Start í undanúrslitum norska bikarsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2011 19:52 Haraldur Freyr Guðmundsson. Mynd/Anton
Haraldi Frey Guðmundssyni og félögum hans í Start mistókst að tryggja félaginu sæti í bikarúrslitaleiknum í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið tapaði 0-1 á móti Aalesund í kvöld í seinni undanúrslitaleik norsku bikarkeppninnar. Aalesund, sem var á heimavelli í þessum leik, mætir Birki Má Sævarssyni og félögum í Brann í bikarúrslitaleiknum. Eina mark leiksins var slysalegt sjálfsmark Haraldar á 40. mínútu. Demar Phillips, framherji Aalesund, átti þá skot sem Alexander Lund Hansen, markvörður Start, varði en boltinn fór í Harald og þaðan í markið. Haraldur Freyr kom til Start í lok ágúst en hann var fyrirliði Keflavíkurliðsins í sumar. Haraldur var þarna að mæta sínum gömlu félögum í Aalesund en hann lék 88 leiki fyrir félagið á árunum 2005 til 2009. Þetta er í annað skiptið á þremur árum sem Aalesund kemst alla leið í bikarúrslitaleikinn en liðið varð bikarmeistari árið 2009 eftir sigur á Molde í vítakeppni í úrslitaleiknum.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira