Handbolti

Þorgerður Anna ekki valin í landsliðið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þorgerður Anna Atladóttir kemst ekki í íslenska landsliðið.
Þorgerður Anna Atladóttir kemst ekki í íslenska landsliðið. Ole Nielsen
Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, hefur valið þá leikmenn sem munu taka þátt í leikjum liðsins í undankeppni EM 2012 síðar í mánuðinum.

Þorgerður Anna Atladóttir, leikmaður Vals, er ekki valin að þessu sinni. Ágúst Jóhannesson landsliðsþjálfari segir að hann telji aðra leikmenn henta betur í leikina gegn Spáni og Úkraínu.

„Ég ákvað að hvíla hana í þetta skiptið. Þorgerður stóð sig vel í Meistarakeppni HSÍ í haust og skoraði mörg mörk en notaði líka kannski nokkuð margar tilraunir. En hún er klárlega í mínum framtíðarplönum," sagði Ágúst við Vísi í dag.

„Það eru fleiri leikmenn sem hafa verið að standa sig vel eins og Ragnhildur Rósa (Guðmundsdóttir) sem munu nýtast liðinu betur í þessum verkefnum."

„Ég valdi átján leikmenn í þetta skiptið en er með 20-25 nöfn á blaði sem eru og verða áfram í myndinni hjá mér."

Ísland hefur leik í undankeppninni gegn Spáni á útivelli fimmtudaginn 20. október. Liðið leikur svo gegn Úkraínu þremur dögum síðar í Laugardalsvelli. Þar að auki er Sviss í sama riðli en fyrirfram má reikna með því að baráttan um að fylgja Spánverjum upp úr riðlinum standi á milli Íslands og Úkraínu.

„Spánn er líklega með sterkasta liðið og það er ljóst að leikurinn á Spáni verður mjög erfiður. Úkraína er heldur ekkert grín þrátt fyrir að við unnum liðið örugglega síðasta þegar við mættumst. Það er ljóst að heimaleikurinn gegn Úkraínu verður afar mikilvægur."

Landsliðshópurinn:

Markverðir:

Guðný Jenny Ásmundsdóttir, Val

Guðrún Ósk Maríasdóttir, Fram

Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir, HK

Aðrir leikmenn:

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val

Arna Sif Pálsdóttir, Aalborg

Ásta Birna Gunnarsdóttir, Fram

Birna Berg Haraldsdóttir, Fram

Brynja Magnúsdóttir, HK

Dagný Skúladóttir, Valur

Hanna Guðrún Stefánsdóttir, Stjörnunni

Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Val

Karen Knútsdóttir, HSG Blomberg-Lippe

Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, Valur

Rakel Dögg Bragadóttir (fyrirliði), Levanger HK

Rut Jónsdóttir, Team Tvis Holstebro

Sólveig Lára Kjærnested, Stjörnunni

Stella Sigurðardóttir, Fram

Þórey Rósa Stefánsdóttir, Team Tvis Holstebro




Fleiri fréttir

Sjá meira


×