Handbolti

Guðfinnur: Við náðum aldrei í þá

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Úr leik Gróttu og HK.
Úr leik Gróttu og HK. mynd/valli
Guðfinnur Kristmansson þjálfari Gróttu sagði slakan varnarleik verða liði sínu að falli gegn Haukum í kvöld en var að mörgu leyti ánægður með sóknarleikinn.

„Við hefðum svo sannarlega viljað stríða Haukum meira í þessum leik. Ég veit ekki hvað gerist. Við spilum bara ekki nógu góða vörn í fyrri hálfleik. Við náðum aldrei í þá, náðum aldrei að brjóta á þeim. Boltinn flýtur hjá þeim og við náum aldrei að stoppa þá,“ sagði Guðfinnur en Haukar voru átta mörkum yfir í hálfleik og úrslitin í raun ráðin.

„Við klárum leikinn ágætlega. Seinni hálfleikur finnst mér þrælfínn. Við fáum fullt af færum en Birkir eru að verja mjög vel, sérstaklega úr dauðafærum. Við fáum færi til að skora mörk en að sama skapi fengum við alltaf mark á okkur nema undir lokin þegar við skiptum í 6-0 og fengum Magga (Magnús Sigmundsson) í gang í markinu. Þá fór þetta að líta betur út.“

„Við vitum að í þessari deild má maður ekki gera mistök, þá er maður lentur undir og við gerum það á kafla í fyrri hálfleik. Þá hikstar sóknin og vörnin ekki að gera sig. Við lendum aðeins undir og þá förum við að hugsa um eitthvað annað en okkur sjálfa. Ég veit ekki hvort menn missi trúna en okkar leikur riðlast og við náum ekki takti aftur. Í byrjun seinni spilum við fínan sóknarleik en fáum alltaf mark á okkur þannig að bilið er alltaf jafn stórt og þess vegna verður þetta erfitt,“ sagði Guðfinnur að lokum.

Grótta mætir Aftureldingu í næstu umferð og lítur Guðfinnur ekkert frekar á þann leik sem úrsltialeik frekar en aðra leiki. „Þetta eru allt úrslitaleikir hjá okkur. Við þurfum að spila upp á stig í hverjum leik. Ég neita því ekki að þetta er mikilvægur leikur en þeir eru allir mikilvægir,“ sagði Guðfinnur að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×