Handbolti

Füchse Berlin vann í Danmörku

Alexander Petersson.
Alexander Petersson.
Þýska félagið Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar og Alexanders Peterssonar, vann í dag góðan sigur á danska liðinu Bjerringbro-Silkeborg í Meistaradeildinni.

Lokatölur 25-30. Leikurinn var hnífjafn framan af en í síðari hálfleik náði Berlin að síga fram úr. Bjerringbro kom þó alltaf til baka og mátti þýska liðið hafa virkilega fyrir sigrinum.

Berlin komst með sigrinum upp að hlið Atletico Madrid á toppi B-riðils. Bæði lið með fimm stig. Bjerringbro er í neðsta sæti riðilsins án sigurs.

Alexander Petersson átti ágætan leik í liði Berlin. Guðmundur Árni Ólafsson lék síðustu átta mínúturnar fyrir Bjerringbro.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×