Solbakken vill fá Björn Bergmann við hlið Podolski hjá Köln Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. nóvember 2011 16:00 Björn Bergmann Sigurðarson. Mynd/Vilhelm
Björn Bergmann Sigurðarson gæti verið á leiðinni í þýska fótboltann ef marka má fréttir á þýska vefmiðlinum Express.de. Stale Solbakken, norski þjálfari Kölnarliðsins, hefur mikinn áhuga á íslenska 21 árs landsliðsmanninum sem hefur gert það gott í sumar. Björn Bergmann meiddist reyndar í september og hefur ekkert getað leikið með Lilleström á lokakafla deildarinnar. Fram að því hafði hann farið á kostum enda búinn að skora 5 mörk og leggja upp sjö önnur fyrir félaga sína í Lilleström-liðinu. Björn Bergmann skoraði einnig bæði mörk 21 árs landsliðsins í 2-1 sigri á Belgíu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM. Það er eini sigur 21 árs landsliðsins í riðlinum og jafnframt eini leikurinn sem liðið hefur getað stillt upp Birni í framlínunni. Solbakken er sagður hafa áhuga bæði á Birni sem og Remi Johansen hjá Tromsö. Johansen er búinn að skora 2 mörk og gefa 5 stoðsendingar í 27 leikjum í norsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Solbakken er að leita sér að öðrum framherja við hlið þýska landsliðsmannsins Lukas Podolski en Podolski hefur farið á kostum á þessu tímabili og er með 9 mörk og 5 stoðsendingar í fyrstu ellefu umferðunum á þessu tímabili. Næsti sóknarmaður Kölnar er síðan aðeins með tvö mörk.
Þýski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjá meira