Handbolti

Patrekur sáttur þrátt fyrir tvö töp

vísir/getty
Patrekur Jóhannesson stýrir sínum fyrstu leikjum með Austurríki nú um helgina. Fyrstu tveir leikirnir hafa tapast. Í gær tapaði liðið fyrir Pólverjum, 29-27, og í dag lágu lærisveinar Patreks fyrir Rússum, 33-26.

Þrátt fyrir tapið líst Patreki vel á liðið sem hann hefur í höndunum.

"Margir ungir leikmenn hjá mér að spila sína fyrstu alvöru landsleiki en stóðu sig allir frábærlega. Líst vel á framhaldið hjá liðinu mínu," sagði Patrekur á Facebook-síðu sinni í dag.

Austurríki mætir Hvít-Rússum á morgun og þar gæti fyrsti sigurinn komið hjá Patreki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×