Handbolti

Björgvin og Aron meiddir

Björgvin Páll og Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari.
Björgvin Páll og Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari. Mynd/Valli
Það kvarnast enn úr íslenska landsliðshópnum sem æfir hér á landi þessa dagana. Nú eru tveir markverðir gengnir úr skaftinu.

Björgvin Páll Gústavsson er meiddur á öxl og Aron Rafn Eðvarðsson er meiddur á ökkla eftir að hafa snúið sig á æfingu landsliðsins í dag.

Eini markvörðurinn með fulla heilsu er því Hreiðar Levý Guðmundsson. Jafni annar hvor markvarðanna sig ekki fyrir föstudag má fastlega gera ráð fyrir því að Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hói í Sveinbjörn Pétursson, markvörð Akureyrar, sem hefur verið viðloðandi landsliðið í síðustu verkefnum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×