Handbolti

Handboltaáhugamenn fá að velja Úrvalslið HSÍ

Leikmenn Úrvalsliðs HSÍ fá að spila gegn Aroni og félögum.
Leikmenn Úrvalsliðs HSÍ fá að spila gegn Aroni og félögum.
Íslenska landsliðið spilar æfingaleik gegn Úrvalsliði HSÍ á föstudag. Handboltaáhugamenn fá að taka þátt í að velja úrvalsliðið.

HSÍ mun standa fyrir netkosningu á síðunni hsihandbolti.wordpress.com en allir leikmenn á Íslandi fyrir utan landsliðsmennina eru gjaldgengir í kjörinu.

Velja skal einn markvörð og sex útileikmenn. Endanlegt val á liðinu er byggt á atkvæðagreiðslunni og svo niðurstöðu valnefndar íþróttafréttamanna.

Tilkynnt verður um úrvalsliðið á fimmtudag en leikurinn sjálfur fer fram í Laugardalshöllinni klukkan 20.00 á föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×