Handbolti

Ólafur lék sinn fyrsta leik með AG í sigri á Lemvig - Snorri með stórleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafur Stefánsson.
Ólafur Stefánsson. Mynd/Heimasíða AG
Ólafur Stefánsson lék sinn fyrsta leik með AG Kaupmannahöfn þegar liðð vann átta marka útisigur á Lemvig Thyborøn, 34-26, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ólafur hafði misst af fyrsta hluta tímabilsins vegna langvinnra hnémeiðsla.

Snorri Steinn Guðjónsson átti stórleik í liði AG og skoraði átta mörk í leiknum en Ólafur Stefánsson var með þrjú mörk og þeir Arnór Atlason og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu eitt mark hvor.

Snorri Steinn og Ólafur áttu líka báðir margar stoðsendingar samkvæmt frétt á heimasíðu AG í kvöld. Arnór Atlason og Snorri Steinn Guðjónsson voru í byrjunarliði AG en Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson byrjuðu báðir á bekknum. Arnór meiddist snemma í leiknum og spilaði lítið.

Ólafur kom inn á um miðjan hálfleikinn og skoraði úr þremur fyrstu skotum sínum í leiknum en AG var 19-13 yfir í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×