Óvæntur sigur Bröndby gegn FCK - Sölvi ekki með vegna meiðsla Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. nóvember 2011 14:30 Ragnar Sigurðsson, til hægri, í leik með FCK. Nordic Photos / Getty Images
Bröndby hafði í dag betur gegn erkifjendum sínum í FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni, 2-1. Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn sem miðvörður í vörn FCK en Sölvi Geir Ottesen var ekki með vegna meiðsla. Sölvi Geir staðfesti í samtali við Vísi að ákvörðun hafi verið tekin fyrir leik að hann myndi ekki spila þar sem hann hefur verið tæpur vegna meiðsla í baki. Sigur Bröndby var óvæntur enda liðið í tíunda sæti deildarinnar af tólf liðum. FCK er hins vegar á toppi deildarinnar með 35 stig, sjö stigum meira en Nordsjælland sem er í öðru sæti. Peter Larsson tók stöðu Sölva í byrjunarliðinu en hann þurfti sjálfur að fara meiddur af velli eftir aðeins tólf mínútna leik og inn í hans stað kom bakvörðurinn Johnny Thomsen. Það hafði greinilega slæm áhrif á varnarleik FC Kaupmannahafnar í dag. FCK byrjaði gríðarlega vel í upphafi tímabilsins en hefur aðeins verið að gefa eftir og tapað þremur af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni. Sigri Nordsjælland leik sinn gegn Íslendingaliðinu SönderjyskE í dag minnkar forysta FCK í aðeins fjögur stig. Bröndby virðist hins vegar aðeins vera að rétta úr kútnum eftir skelfilega byrjun í haust. Liðið hefur nú ekki tapað í þremur leikjum í röð og er nú komið upp í sautján stig. Bröndby er í tíunda sæti deildairnnar en aðeins níu stigum á eftir Midjylland sem er í þriðja sæti.Uppfært 17.00: Nordsjælland hafði betur gegn SönderjyskE, 2-0. Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónsson léku báðir allan leikinn með SönderjyskE. Nordsjælland hefur því minnkað forystu FCK á toppnum í fjögur stig.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira