Handbolti

Bikarlið Valsmanna fékk stóran skell - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Stefán
Bikarmeistarar Valsmanna, sem voru búnir að komast í bikarúrslitaleikinn fjögur ár í röð og höfðu þar af lyft bikarnum í þrígang, fengu slæma útreið á móti Haukum í átta liða úrslitum Eimskipsbikarsins á Hlíðarenda í gær.

Haukar höfðu mikla yfirburði allan leikinn en slitu sig endanlega frá Valsmönnum með því að skora fimm mörk í röð í lok fyrri hálfleiks og ná 15-7 forystu í hálfleik.

Haukar eru því komnir í undanúrslit Eimskipsbikarsins en liðið er einnig á toppi N1 deildar karla og er nú búið að vinna níu leiki í röð í deild og bikar.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum í Vodafonehöllinni í gær og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×