Handbolti

Fram þurfti að hafa fyrir Stjörnunni 2

Ingimundur Ingimundarson.
Ingimundur Ingimundarson. Mynd/Anton
Fram tryggði sér sæti í undanúrslitum Eimskipsbikars karla með sex marka sigri á Stjörnunni 2 34-28. Sigur Fram var öruggur en Stjarnan 2 var aldrei langt undan og hélt Fram við efnið allan leikinn.

Flestir bjuggust við auðveldum sigri Fram en í liði Stjörnunar 2 eru leikmenn sem nýlega eru hættir handboltaiðkun sem kunna sitt fag og eru í góðu líkamlegu formi. Þeirra markahæstur var Hermann Björnsson, sem lagði skóna á hilluna síðasta vetur, með 11 mörk.

Ingimundur Ingimundarson og Einar Rafn Eiðsson fóru fyrir liði Fram og skoruðu sex mörk hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×