Handbolti

Fram hafði betur í borgarslagnum - myndir

Fram vann í gær eins marks sigur á Val í slag Reykjavíkurliðanna í N1-deild karla, 28-27. Með sigrinum komst Fram upp í annað sæti deildarinnar.

Fram fékk þar með dýrmæt stig í baráttunni en aðeins þrjú stig skilur að liðni í öðru og sjötta sæti.

Einar Rafn Eiðsson skoraði sjö mörk fyrir Fram í leiknum og Anton Rúnarsson sjö fyrir Val.

Anton Brink, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins var á staðnum og tók þessar myndir.

Mynd/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×