Handbolti

Snorri með sex mörk í sigri AG

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur og félagar unnu í dag.
Guðjón Valur og félagar unnu í dag. Mynd/Heimasíða AG
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði sex mörk og Guðjón Valur Sigurðsson fjögur þegar að AG vann sigur á Århus í dönsku úrvalsdeildinni í dag, 30-27.

AG hafði undirtökin allan leikinn en staðan í hálfleik var 15-11, AG í vil. Arnór Atlason og Ólafur Stefánsson voru ekki meðal markaskorara liðsins.

Þá vann Nordsjælland sigur á SönderjyskE, 28-25. Ólafur Guðmundsson skoraði eitt mark fyrir Nordsjælland en hann er þar sem lánsmaður frá AG.

AG er í efsta sæti deildarinnar með 27 stig af 30 mögulegum en Nordsjælland er í ellefta sæti með ellefu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×