Handbolti

Löwen vann Íslendingaslaginn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rúnar Kárason
Rúnar Kárason Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Rhein-Neckar Löwen sem Guðmundur Guðmundsson þjálfar og Róbert Gunnarsson leikur með sigraði lið Rúnars Kárasonar BHC 06 örugglega 25-34 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Rúnar Kárason var næst markahæstur hjá BHC 06 með fimm mörk Alexander Oelze var markahæstur með 6 mörk.

Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen en hornamaðurinn Uwe Gansheimer var markahæstur með 10 mörk.

Nú þegar hlé verður gert á deildarkeppninni vegna EM í Serbíu er Löwen í fimmta sæti deildarinnar með 25 stig en BHC 06 er í 15. sæti með 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×