Handbolti

AG vill halda Ólafi út næsta tímabil

Ólafur í leik með AG.
Ólafur í leik með AG.
Jesper Nielsen, eigandi danska félagsins AG, staðfesti í kvöld að hann vildi framlengja samning félagsins við Ólaf Stefánsson til ársins 2013.

Ólafur er orðinn 38 ára gamall en hefur sýnt í undanförnum leikjum að hann er ekki dauður úr öllum æðum þó svo hann hafi verið meiddur nánast allan veturinn.

Nielsen hefur mikinn áhuga á því að fá Svíann Kim Andersson frá Kiel en hann er með samning við lið Alfreðs Gíslasonar til ársins 2013.

Nielsen vill því semja við Ólaf til 2013 og sjá svo til með framhaldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×