Formúla 1

Alonso: Erfitt að meta getu Ferrari

Fernando Alonso, ökumaður Ferrari.
Fernando Alonso, ökumaður Ferrari. Mynd: Getty Images/Paul Gilham

Öll keppnislið í Formúlu 1 eru með nýja bíla á þessu ári og flest þeirra æfa á Valencia brautinni í dag á síðasta degi æfinga. Fernando Alonso segir erfitt að meta eiginleika 2011 Ferrari bílsins, en hann var með besta tíma í gær.

"Það er erfitt að meta samkepnishæfni bílsins, vegna þess að minna bensín var um borð í bílunum en í fyrra, þannig að auðveldara var að meta þá", sagði Alonso við fréttamenn eftir æfingu í gær, samkvæmt frétt á autosport.com.

Alonso saknaði þess að Massa væri ekki til samanburðar að keyra á sama tíma, en hann ekur í dag í stað Alonso. Alonso hefur ekið hátt í 200 hringi um Valencia brautina."

"Mér líður vel með æfingarnar. Þetta var góð byrjun. Stillanlegi afturvængurinn er nýr tækjakostur og við erum að þróa hann. Hann er ekki auðveldur í meðförum og þarf æfingu til að ná því að nota hann."

"Það sama má segja um KERS búnaðinn. Það eru aukatakkar á stýrinu og tekur tíma að venjast því. Ég æfði ökuhermi áður ég æfði hérna og get sagt að æfingarnar hafa verið skilvirkar", sagði Alonso um æfingarnar tvo síðustu daga.

Sjá meira um æfingarnar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×