Formúla 1

Alonso telur að fjögur keppnislið verði sterkust í Formúlu 1

Fernando Alonso situr á nýja Ferrari keppnisbílnum sem var frumsýndur í dag.
Fernando Alonso situr á nýja Ferrari keppnisbílnum sem var frumsýndur í dag. Mynd: Ferrari
Fernando Alonso hjá Ferrari telur að fjögur keppnislið verði í baráttunni um meistaratitilinn í Formúlu 1 í ár. Hann afhjúpaði nýja Ferrari keppnisbílinn með Felipe Massa í Maranello á Ítalíu í dag. Þeir eru liðsfélagar eins og í fyrra. Alonso sagði í frétt á heimasíðu Ferrari að menn væru áræðnir hjá Ferrari, en liðið var með sérstaka frumsýningu á nýjum keppnisbíl liðsins í dag, en önnur lið munu sýna bíla sína á fyrstu æfingum í næstu viku að sögn Alonso. "Ég hugsa að Mercedes gæti hafa smíðað samkeppnisfæran bíl, einnig McLaren og Red Bull. Við verðum að berjast við þessi lið", sagði Alonso um komandi titilslag. Hann mun aka spánýju ökutæki á þessu keppnistímabili, sem er sniðið að nýjum keppnisreglum og ekið verður á dekkjum frá nýjum dekkjaframleiðanda, sem er Pirelli. "Þegar ég mætti til leiks (með Ferrari í fyrra) þá upplifði ég ólíkan bíl frá því sem ég hafði ekið áður. Á þessu ári tel ég að akstursstíll minn hafi haft áhrif á hönnun og þróun bílsins. Núna þekki ég líka starfsmenn liðsins og er í góðum samskiptum og set á þá pressu öllum stundum", sagði Alonso.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×