Handbolti

Reynir: Meiri áræðni í sóknarleikinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Reynir Þór Reynisson, þjálfari Fram, segir að sínir menn þurfi meiri tíma til að slípa sig aftur saman eftir langt vetrarfrí. Fram og FH gerðu í kvöld jafntefli, 26-26, í N1-deild karla.

„Mér fannst sérstaklega sóknarleikurinn vera nokkuð ryðgaður í kvöld. Við erum að koma úr sex vikna pásu og þurfum lengri tíma til að slípa okkur saman. Ég var því ekki alveg nógu sáttur við leikinn,“ sagði Reynir.

„Varnarleikurinn var ágætur hjá okkur og það er jákvætt. En við þurfum að laga sóknarleikinn. Við erum að gera það sama og við vorum að gera fyrir áramóti en það vantar nú meiri hreyfanleika og áræðni í sóknarleikinn. Við þurfum að koma Jóhanni Gunnari betur inn í leikinn en hann er búinn að vera frá vegna meiðsla og nýbyrjaður að æfa aftur. Hann á eftir að koma sterkari inn í þetta. Við þurfum því að nota tímann vel.“

Framarar fóru á mikið flug fyrir áramót og unnu átta leiki í röð en nú hafa þeir ekki unnið í síðustu tveimur deildarleikjum sínum. „Við fórum rólega af stað í haust og við þurfum að vinna okkur hægt og rólega inn í mótið aftur. Við höfum getuna og þurfum bara að slaka aðeins á, æfa vel og fara betur yfir okkar leik.“

Ólafur Andrésson og Ásbjörn Friðriksson skoruðu 21 af 26 mörkum FH í kvöld. Reynir sagði að sínir menn hefðu reynt að verjast þeim. „Við reyndum að verjast þeim eins vel og við gátum. Við settum mann á Óla og gengum framar út í Ása og beina þeim í ákveðin svæði. En það var allt inni hjá þeim í kvöld og lítið við því að segja.“

En Róbert Aron Hostert var líka heitur hjá Frömurum og skoraði sjö mörk í síðari hálfleik. „Róbert er stórefnilegur leikmaður, einn okkar efnilegasti leikmaður í deildinni og hörkugóður þar að auki. Við eigum því gott vopn á vinstri vængnum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×