Handbolti

Akureyri og FH drógust saman í bikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valur og Fram mætast í undanúrslitum bikarsins.
Valur og Fram mætast í undanúrslitum bikarsins.
Það var dregið í undanúrslit Eimskipsbikars karla og kvenna í handbolta í þættinum hjá Þorsteini J. á Stöð 2 Sport í kvöld þar sem stórleikurinn er á milli Akureyringa og FH-inga sem þegar eru búin að leika einn úrslitaleik á þessu tímabili.

Topplið N1 deildar karla, Akureyri, fékk heimaleikinn á móti FH en liðin mættust einmitt á dögunum í úrslitaleik deildarbikarsins þar sem FH hafði betur. Nágrannarnir og erkifjendurnir Valur og Fram mætast í hinum leiknum á Hlíðarenda en það voru miklar sveiflur á milli tveggja leikja liðanna í vetur.

Bikarmeistarar Fram í kvennaflokki fá heimaleik á móti HK-liðinu sem sló Stjörnuna óvænt út í átta liða úrslitum. Íslandsmeistarar Vals þurfa að heimasækja Fylki í Árbænum en fyrirfram búast menn við enn einum úrslitaleik hjá Val og Fram.

Undanúrslit karla

Akureyri-FH

Valur-Fram

Undanúrslit kvenna

Fram-HK

Fylkir-Valur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×