Handbolti

Guðlaugur og Heimir Örn báðir meiddir

Guðlaugur Arnarsson.
Guðlaugur Arnarsson.
Varnaruxinn Guðlaugur Arnarsson, leikmaður Akureyrar, er á hækjum þessa dagana eftir að hafa farið í hnéaðgerð skömmu fyrir jól.

Húsvíkingurinn ákvað að nýta EM-fríið til þess að fara í aðgerðina en hann ætti að vera kominn aftur á ferðina í næsta mánuði er deildin byrjar á nýjan leik. Þetta kemur fram í Vikudegi.

Leikstjórnandinn Heimir Örn Árnason hefur verið talsvert meiddur í vetur og í læknisskoðun um daginn kom í ljós að hann er með bólgur undir ylinni og í öxlinni vinstra megin.

Engu að síður stefnir Heimir að því að spila fyrsta leik eftir frí, rétt eins og Guðlaugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×