Hoffenheim búið að selja besta framherjann sinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2012 15:00 Vedad Ibisevic. Nordic Photos / Getty Images
Hoffenheim, lið Gylfa Þórs Sigurðssonar í þýsku úrvalsdeildinni, hefur ákveðið að selja sinn helsta framherja til Stuttgart. Sá heitir Vedad Ibisevic og er Bosníumaður. Hann hefur skorað fimm mörk á tímabilinu til þessa og er markahæstur í liðinu ásamt Brasilíumanninum Roberto Firmino. Ibisevic hefur þó aðeins spilað tíu leiki á tímabilinu en Firmino sautján. Gylfi Þór er nú í láni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni en hann var markahæsti maður Hoffenheim í sumar. Meiðsli settu strik í reikninginn hjá honum í upphafi tímabilsins og fékk hann lítið að spila eftir að hann varð heill á ný. Aðeins fjórir leikmenn hafa skorað átján deildarmörk Hoffenheim á tímabilinu og því mátti Hoffenheim ekki við því að missa Ibisevic. Hins vegar var ákveðið að ganga að tilboði Stuttgart sem er sagt vera upp á 5,5 milljónir evra, þrátt fyrir yfirlýsingar eigandans Dietmar Hopp fyrr í vikunni að hann væri mótfallinn sölunni. Gengi Hoffenheim á tímabilinu hefur ekki verið frábært en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu átta leikjum sínum í deildinni. Liðið er þó í áttunda sæti með 23 stig og siglir því lygnan sjó í bili. Gylfi Þór er samningsbundinn Hoffenheim til 2014 en gæti gert langtímasamning við Swansea ef félagið ákveður að kaupa hann í sumar.
Þýski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Sjá meira