Handbolti

Álaborg lagði AG öðru sinni í vetur

Guðjón Valur var markahæstur í liði AG í kvöld ásamt Mikkel Hansen.
Guðjón Valur var markahæstur í liði AG í kvöld ásamt Mikkel Hansen. mynd/AG
Álaborg hefndi fyrir tapið gegn AG í úrslitum bikarkeppninnar um helgina með því að skella ofurliðinu í kvöld, 26-24.

Þetta er í annað sinn í vetur sem Álaborg nær að leggja AG. AG vann leik liðanna um helgina með sex mörkum.

Álaborg var sterkara allan tímann og leiddi í hálfleik, 13-8.

Guðjón Valur Sigurðsson hélt upp á samninginn við þýska liðið Kiel með því að skora fimm mörk í kvöld. Árnór Atlason skoraði þrjú mörk en þeir Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson skoruðu eitt mörk hvor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×