Handbolti

Róbert og Ásgeir Örn til Parísar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert í leik með íslenska landsliðinu.
Róbert í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Þeir Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson munu spila í Frakklandi á næstu leiktíð þar sem þeir hafa gengið frá samningum við Paris Handball.

Þetta kemur fram í frönskum fjölmiðlum í dag. Róbert er á mála hjá Rhein-Neckar Löwen í Þýskalandi en verður samningslaus í sumar. Ásgeir Örn er skytta og hornamaður og hefur spilað með Hannover-Burgdorf að undanförnu.

Báðir hafa verið lykilmenn í íslenska landsliðinu en Róbert er 32 ára gamall og Ásgeir Örn 28 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×