Handbolti

Ásgeir Örn með fimm í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ásgeir Örn í leik með íslenska landsliðinu.
Ásgeir Örn í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/AP
Hannover-Burgdorf hafði betur gegn Balingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 30-24. Staðan í hálfleik var 18-12, heimamönnum í Hannover í vil.

Ásgeir Örn Hallgrímsson var meðal markahæstu leikmanna Hannover-Burgdorf með fimm mörk. Vignir Svavarsson skoraði tvö en Hannes Jón Jónsson ekkert að þessu sinni.

Þetta var mikilvægur sigur hjá Hannover-Burgdorf sem komst upp í sextán stig. Liðið er í fjórtánda sæti en Balingen í því ellefta.

Í þýsku B-deildinni náði Björgvin Hólmgeirsson að tryggja DHC Rheinland sigur á Düsseldorf, 22-21. Hann skoraði eitt mark í leiknum og kom það tæpum þremur mínútum fyrir leikslok. Reyndist það sigurmark leiksins.

Rheinland er í næstneðsta sæti deildarinnar með tólf stig en þess ber að geta að tíu stig voru dæmd af liðinu í upphafi tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×