Fjölnir fór langt með að bjarga sér með sigri í Hveragerði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2012 20:53 Bragi Magnússon, þjálfari Fjölnis. Mynd/Stefán
Fjölniskonur unnu sex stiga sigur á Hamar í Hveragerði, 77-71, í Iceland Express deild kvenna í kvöld og náðu þar með fjögurra stiga forskoti á Hamar í baráttu liðanna um að sleppa við fall. Hamar getur enn náð Fjölni í síðustu tveimur umferðunum því Hamarskonur eru með betri árangur í innbyrðisviðureignum. Það voru miklar sveiflur í leiknum því Hamar vann upp sextán stiga forskot Fjölnis og var níu stigum yfir, 66-57, þegar fimm mínútur voru eftir. Fjölnir vann hinsvegar síðustu fimm mínútur leiksins 20-5 og tryggði sér dýrmætan sigur. Brittney Jones var með 30 stig og 9 stoðsendingar fyrir Fjölni í kvöld, Jessica Bradley var með 24 stig og 17 fráköst og Katina Mandylaris bætti við 10 stigum og 20 fráköstum. Fanney Lind Guðmundsdóttir skoraði 19 stig fyrir Hamar, Katherine Virginia Graham var með 18 stig og 10 stoðsendingar og Marín Laufey Davíðsdóttir skoraði 16 stig og tók 15 fráköst. Fjölnir komst í 6-0, 9-2 og 16-4 í upphafi leiks og Lárus Jónsson var búinn að taka leikhlé eftir fimm mínútna leik. Hamar kom muninum aftur niður sjö stig (19-12) en Fjölnir var síðan 23-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Fjölnisliðið náði mest sextán stiga forskoti í öðrum leikhlutanum (34-18) en hamarskonur unnu síðustu sjö mínútur leikhlutans 16-4 og því munaði bara fjórum stigum á liðunum í hálfleik, 38-34. Fanney Lind Guðmundsdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir skoruðu báðar 10 stig fyrir Hamar í hálfleiknum en Brittney Jones var með 14 stig og 5 stoðsendingar hjá Fjölni. Fjölnir tók aftur völdin í byrjun seinni hálfleiks, vann fyrstu sex mínútur leikhlutans 9-2 og komst ellefu stigum yfir, 47-36. Hamar náði að minnka muninn í þrjú stig, 48-51, fyrir lok þriðja leikhlutans og snéri leiknum með frábærri byrjun í þeim fjórða. Hamar skoraði 11 af fyrstu 12 stigum fjórða leikhlutans og komst sjö stigum yfir, 59-52. Hamar var þá búið að skora 23 stig gegn fimm á aðeins átta mínútna kafla. Fjölnisliðið gafst ekki upp og tryggði sér sigur með frábærum lokakafla eða með því að vinna fimm síðustu mínútur leiksins 20-5.Hamar-Fjölnir 71-77 (16-23, 18-15, 14-13, 23-26)Hamar: Fanney Lind Guðmundsdóttir 19, Katherine Virginia Graham 18/5 fráköst/10 stoðsendingar/6 stolnir, Marín Laufey Davíðsdóttir 16/15 fráköst, Íris Ásgeirsdóttir 7, Samantha Murphy 7/5 fráköst, Álfhildur Þorsteinsdóttir 4/5 fráköst.Fjölnir: Brittney Jones 30/5 fráköst/9 stoðsendingar, Jessica Bradley 24/17 fráköst, Katina Mandylaris 10/20 fráköst, Birna Eiríksdóttir 5, Bergdís Ragnarsdóttir 4/4 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Erla Sif Kristinsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Sjá meira